top of page

Kæri lögfræðingur eða starfsmaður lögfræðings.

Ég get sent þér skýrslu varðandi skjólstæðing þinn. Ég legg mikla vinnu í hana og verðið er 88.000 kr. en hún mun mjög ólíklega gagnast þér eða skjólstæðingnum. Ástæðan er sú að ég hef mikinn áhuga á verkjafræðum og hef lagt áherslu á að kynna mér hvað taugavísindin segja um verki í dag.Og hvað segja taugavísindin?

“Pain is not an accurate measure of tissue health” Lorimer Moseley, sjúkraþjálfari og háskólaprófessor og einn virtasti verkjafræðingur heims í dag.

Nánar:

  • Verkir eru ávallt hættuboð frá heilanum. Hvort sem þú varst að fótbrjóta þig eða ert með streituhöfuðverk eftir erfiðan dag.

  • Þegar verkir eru orðnir langvinnir (hafa varað lengur en 3-6 mánuði) þá eru þeir meira á þeim svæðum heilans sem hafa með minni og tilfinningar að gera en þegar um bráða verki er að ræða.

  • Hræðsla og óttablandin athygli á verki keyrir þá áfram.Rétt eins og fólk sem hefur misst útlim getur áfram verkjað í hann þá getur fólk haft mikla verki á hvaða svæði líkamans sem er án þess að nokkuð sé að á þeim líkamspart og það er meira að segja mjög algengt. Þegar kennari heyrir að lús sé komin í skólann þá er algengt að hann fari að klæja. Ef tveir aðilar byrja á lyfi og annar les fylgiseðilinn en ekki hinn þá er sá líklegri til að fá aukaverkanir sem las fylgiseðilinn. Þetta byggir á nokkru sem kallast forspárkóðun í taugavísindum og það sama á gjarnan við þegar við festumst í verkjum.

  • Verkir eru mismunandi eftir menningu. Til dæmis eru þeir mjög algengir í Bandaríkjunum þar sem dýrt er að vera veikur og apótek og lyfjafyrirtæki eru mjög dugleg að auglýsa sínar vörur. Einstaklingshyggja og kapítalismi getur þannig líka haft sitt að segja.

  • Verkir eru tilfinning rétt eins og kvíðahnútur í maga eða þyngsli í brjóstkassa vegna depurðar. Fjöldi rannsókna hefur sýnt að áföll í æsku auka líkur á verkjum bæði í æsku en einnig seinna á lífsleiðinni (áföll í æsku eru þó ekki nauðsynleg til að fólk festist í langvinnum verkjum). Áföll í æsku auka líkur á fullkomnunaráráttu, sjálfshörku, þóknun, markaleysi og kvíðahugsunum. Allt veldur þetta álagi á taugakerfið og eykur líkur á verkjum.

 

Þú færð sendan reikning upp á 3.000 kr. fyrir þetta svar við tölvupóstinum þínum. Ég veit, þetta er gjöf en ekki gjald.Ef þú ert sjálfur kæri lesandi að kljást við langvinna verki s.s. bakverk eftir langa vinnudaga eða lélegur í hendi eftir skvasstímana þá óska ég þér til hamingju með að hafa fundið þessar upplýsingar og verði þér að góðu. Það er mikilvægt að útiloka æxli, sjálfsónæmissjúkdóm, sýkingu eða beinbrot og ef það hefur verið gert (læknar eru yfirleitt mjög flinkir í því) þá er mjög mjög mjög líklegt að verkirnir þínir séu einungis að berast frá miðtaugakerfinu, séu miðlægir (e. neuroplastic) og þú getir náð bata.  https://www.youtube.com/shorts/KFafkRdkW6U 

Ekkert okkar á að þurfa að vera fast í verkjavanda. Með þekkingu, samkennd með sjálfu sér og breytingu á hegðun hefur fjöldi fólks náð bata og vonandi ná verkjafræðin útbreiðslu og verða almenn þekking sem allra fyrst en ég veit, það er ekki gott fyrir þína starfsstétt né læknana sem vinna við að sprauta og skera fólk vegna langvinnra verkja. Það er reyndar mjög áhugavert að skoða rannsóknir á skurðaðgerðum og “placebo” skurðaðgerðum við verkjum en ég ætla að segja þetta gott og óska þér góðra og verkjalausra daga.

Virðingarfyllst,

Helga B. Haraldsdóttir sálfræðingur

Fyrirvari: Langvinnir verkir eru í mörgum tilvikum læknanlegir með Verkjaendurferlun og svipuðum nálgunum. Í sumum tilvikum eru langvinnir verkir þó vegna illkynja sjúkdóms eða annars alvarlegs kvilla. Því ber alltaf að fá lækniskoðun þegar um langvinna verki er að ræða svo ljóst sé að alvarlegur/lífshættulegur sjúkdómur sé ekki að orsaka verkina.

bottom of page