Rannsóknir benda til að að minnsta kosti fimmti hver fullorðinn íslendingur glími við langvinna verki og svipað er upp á teningnum í nágrannalöndum okkar.
Á námskeiðinu Verkir: ný sýn og nýjar leiðir til bata er farið yfir fjölda rannsókna sem hafa veitt nýja sýn á langvinna verki síðustu áratugi og sýn vísindamanna sem standa framarlega í verkjafræðum kynnt. Helga Haraldsdóttir sálfræðingur fer einnig yfir hjálplegar aðferðir til bata. Helga er fyrsti viðurkenndi meðferðaraðilinn í Verkjaendurferlun á Íslandi en þessi meðferðarleið hefur verið að skila góðum árangri. Í nýlegri rannsókn á Verkjaendurferlun við Háskólann í Boulder náðu 65% þátttakenda bata. Fram að því hafði slíkur árangur ekki sést í rannsóknum á langvinnum verkjum. Helga hefur haldið fjölda fyrirlestra um Verkjaendurferlun, m.a. á Degi sjúkraþjálfunar 2023 og hjá Verkjafræðafélagi Íslands í mars síðastliðinn.
Dagsetning: 2. maí 2024
Tími: 16:30 - 18:30
Verð: 10.900
Staðsetning: Endurhæfingarstöðin Hæfi, Egilshöll (fyrir aftan World Class)